Um höfundinn
Ég heiti Auður Björk Þórðardóttir og er grunnskólakennari. Ég er með meistarapróf frá Háskólanum á Akureyri í námi og margbreytileika með áherslu á sérkennslufræði og einnig er ég með viðbótardiplómu í menntavísindum með sérhæfingu í námi og læsi. Í meistaranáminu vann ég eigindlega rannsókn á stöðu og þörfum í lestrarbókagerð fyrir byrjendur. Markmiðið var að greina hvernig lestrarbækur og námsefni geta betur mætt þörfum barna sem eru að stíga sín fyrstu skref á leið að læsi.
Á grundvelli niðurstaðna rannsóknarinnar hef ég samið lestrarhefti sem styðja við hljóðkerfisvitund, umskráningu, lesfimi og orðaforða. Í rýnihópaviðtölum lögðu börn áherslu á að bækur væru aðgengilegar og litríkar en kennarar á skýra uppbyggingu, rím og endurtekningu, sem leggja sterkan grunn að læsi. Heftin eru því byggð upp á skýran hátt, með einföldum orðum, stuttum textum og myndum sem styðja við lesturinn.
Ég legg sérstaka áherslu á að bókstafirnir í heftunum fylgi í meginatriðum sömu röð og í bókstafainnlögn Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS). Einnig samræmi ég efnið við bókstafaröðina á kennsluvefjum eins og Út fyrir bókina og 123skóla. Þannig verður innlögnin eins samræmd og stigvaxandi og kostur er, óháð skóla eða kennsluaðferð. Ég valdi Sassoon Infant letrið vegna þess að börnin í rýnihópunum völdu það oftast þegar þau báru saman ólíkar leturgerðir, og lögun stafanna er skýr, sem getur meðal annars auðveldað lesblindum börnum lesturinn. Rannsóknin Clearer and better (Thiessen og Dyson, 2010) styður þetta val, en þar kemur fram að letrið er sérstaklega hannað fyrir byrjendur í lestri og að börn með lestrarvanda taka eftir mun á leturgerðum.
Á þessari heimasíðu geta kennarar, foreldrar og aðrir uppalendur nálgast lestrarheftin, verkefni og stuðningsefni sem hafa verið í stöðugri þróun frá árinu 2022. Markmiðið er að efla læsi, auka jöfnuð og styðja við íslenska tungu með vönduðu og aðgengilegu námsefni.